28.8.2016 | 11:45
Hvert fór sumarið
Kæru bloggvinir
suma
Sumarið sýndi sig hér í nokkra daga en er farið aftur. Það er ausandi rigning i´dag og það voru víst þrumur og eldingar í nótt og líka í morgun. Aldeilis sumarlegt það. VIð fórum út að labba í morgun og lentum í þessari líka úrhellis rigningu. Það var ekki þurr þráður á okkur á eftir. Í gær var mjög gott veður og við vorum úti við mest allan daginn. Ágúst er búinn að fá tvíhjól og er að byrja að æfa sig að hjóla. Frúin skellti sér á bak líka og við fórum smá túr. Verst hvað maður verður alltaf aumur í afturendanum eftir svona túra. En hún kann þetta ennþá. Börnin eru ekki vön að fara upp og niður brekkur og virðast alltaf gleyma hvenrig á að bremsa, svo maður er nú með lífið í lúkunum að þau renni ekki út á götu. Það er töluverð traffík hérna í kring. Þau gleyma nú líka oft umferðareglunum. En þetta hlýtur að koma.
Auður fór á fimmtudaginn í prufutíma í reiðskólanum. Hún fékk einhvern hest sem var alls ekki á þeim buxunum að hreyfa sig, svo þetta var nú frekar rólegt, en hún var mjög ánægð og vildi endilega halda áfram. Svo við verðum eð fylgja með. Það er vonandi að hún verði ánægð með þetta. Það voru allavega ekki mjög mörg börn á fimmtudaginn, svo það ætti að vera nægur tími að venjast hestunum og svoleiðis.
Svo var nú nóg að gera hjá henni á föstudaginn. Hún fór í skólann og svo beint í afmælisveislu hjá bekkjarbróður sínum. Þau eru að hennar sögn hálfkærustupar. Veit ekki hvað það þýðir, en það er örugglega betra en að vera alkærestar. Svo var henni keyrt beint úr afmæli í skátana. Það var ekki mikið eftir af henni um kvöldið og heldur ekki í gær.
Ágúst leikur voða mikið við eina stelpu í leikskólanum, það er spurning hvenær þau tilkynna að þau séu kærustupar. Þetta gerist allt saman mjög snemma nú á tímum. Minnist þess ekki að maður hafi spáð í þetta á þessum aldri. En það er auðvitað fyrir mestu að þau hafi einhvern að leika við.
Auði gengur illa að finna einhverja vinkonu hérna nálægt. Þær sem hún hefur verið með, eru annað hvort alltaf uppteknar eða veikar. Það viriðist ekki vera mikið spáð í að hvetja krakkana til að leika. það sést heldur nánast aldrei neinn utandyra. Ekki nema við og einhverjir aðrir útlendningar.
Nú fer allt að færast í venjulegar skorður. Sundið fer að byrja og allt fer á fullan gang í sjónvarpsþáttaröðum og svoleiðis. Það er gott að það sé einhver rútína.
Jæja best að fara að kíkja á hvort börnin séu búin að rústa húsinu.
Kveðja
Gramgengið
Athugasemdir
Heil og sæl
Alltaf gaman að fá fréttir af ykkur í Danaveldi þó við kvittum ekki í hverri viku. :) Hér hefur sko aldeilis verið sumar og er enn. Sól og blíða í dag, rigndi smá í vikunni sem var bara gott fyrir gróðurinn! Við vorum búin að koma okkur vel fyrir og ganga frá úr öllum kössum(nema 2) þá datt henni dóttur okkar í hug að fá sér vinnu upp í flugstöð og flytja til okkar. ;) Þannig að núna erum við aðeins að endurraða en við höfum svo sem nóg pláss með 3 aukaherbergi. ;) Þau eru reyndar kjaftfull núna. Hér fer líka allt að komast í fastar skorður, við bæði byrjuð að kenna og þá er lítið úthald á kvöldin að gera eitthvað nema sitja í sófanum fyrir framan imbann og hekla eða mála inn í skúr. Annars er allt gott að frétta úr heiðinni og allir biðja að heilsa.
Venlig hilsen
Gunna og Bragi
Gunna og Bragi (IP-tala skráð) 28.8.2016 kl. 14:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.