2.10.2016 | 15:13
Veðraskipti
Kloggvinir
Eins og við vorum búin að spá, þá skipti veðrið úr sumri í haust á einni nóttu. Það gerðist í síðustu viku. Það er reyndar mjög milt haust ennþá. En það er byrjað að vera meira rok. Það fylgir oft haustinu,
Hér er búið að vera nóg að gera um helgina eins og venjulega. Í gær var brunað til Kolding með síma frúarinnar í viðgerð. Hann er nú frekar nýr, en þeir eru ekki svo endingargóðir þessir nýju símar. Svo var farið í kaffi til Gunnþóru. Auði var búið að langa í lengri tíma að leika við Maju Elísabet og var því orðið við því. Gunnþóra er kominn alveg á steypirinn. Það er skrýtið hvað maður gleymir fljótt hversu stór maður er, svona rétt áður en maður eignast börnin.
Þegar heim var komið var farið á fullt í að skipuleggja 50 ára afmæli Rannveigar, sem býr hér í bænum. Hún var alveg grunlaus og kom úr verslunarferð og við tókum á móti henni. Þetta var mjög skemmtilegt og hún var mjög sátt við þetta, svona þegar hún var búin að átta sig á þessu öllu saman. Frúin hefur aldrei verið með í svona partýstandi áður, en það er gaman að prófa. Börnin voru í pössun á meðan og það gekk víst bara vel. Það er alltaf gott að komast aðeins að heiman.
Í dag var Ágúst svo búin að bjóða einni frá leikskólanum að koma að leika. Mamma hennar er frá Eistlandi en gift Dana. Þau eru mjög góð að leika saman. Við fórum út í góða veðrið. Það var búið að rigna frekar mikið í morgun, svo börnin fóru í regngalla og út að hoppa í pollum. Þau urðu rennandi blaut frá toppi til táar. En þeim fannst þetta örugglega hin besta skemmtun.
Annars er víst allt við það sama hérna megin.
Kveðja
Gramgengið
Athugasemdir
Heil og sæl
Það er komið haust hjá okkur líka og fyrsta haustlægðin er í uppsiglingu, rok og rigning og fólk beðið um að athuga lausamuni. Annars hefur verið mjög gott veður undanfarið og fyrst núna er farið að kólna. Við ætlum ekkert út fyrir landssteinana löngu helgina sem er 21. - 24. okt., bara búin að kaupa okkur miða í leikhúsið að sjá Djöflaeyjuna. Enda komið gott af utanlandsferðum þetta árið, ég tvisvar og Bragi þrisvar.
Annars er allt gott að frétta úr heiðinni og allir biðja að heilsa.
Kær kveðja, Gunna og Bragi
Gunna og Bragi (IP-tala skráð) 2.10.2016 kl. 23:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.